19.04.2012 11:54
París - Cambridge
Í París labbaði ég og labbaði... labbaði svo mikið að ég er með einhverja helv.. slæmsku í annari löppinni núna og bara alveg sátt við að taka rólegheitadag í bresku rigningunni...
Ferðalagið frá París og hingað til Cambridge var dálítið skrautlegt. Ég komst klakklaust á flugvöllinn þrátt fyrir úrhelli og traffík... en á flugvellinum gekk ýmislegt á...
í Check-in tók ég upp litla veskið sem ég geymi passann og farmiðana í.... en þar var bara farmiði.. enginn passi !!! Ég hélt í augnablik að litlir fingur hefðu farið í þetta heima hjá Krummu... því ég set passann ALLTAF á sama stað... ég leitaði eins og geðsjúklingur í töskunni og mundi sem betur fer eftir því.. rétt þegar ég var að fara yfirum af stressi, að ég hafði sett passann í "leynihólfið" á bakpokanum þegar ég fór með lestinni frá Amsterdam til Parísar því þar var þetta bara skoðað á leiðinni. Þetta var s.s. undantekninginn frá reglunni.. Frakkar eru mjög strangir á reglum og þarna lenti ég svo í því í fyrsta skipti að þurfa að troða handfarangurstöskunni í grindina til að sjá hvort hún væri "löglegur" handfarangur!! Það rétt slapp....
Svo þegar ég fór að hliðinu þá var vopnaleitin eftir... ég setti töskuna á bandið, tölvuna í sér box og veskið og beltið og skóna... gleymdi úrinu og hringnum...
Pííípp
Úrið í box...
Pííípp
Þukluð í bak og fyrir af geðvondum negra... sem sótti svo "litla píparann" og fann út að það væri hringurinn minn sem hliðið pípti á...
og ekki stökk þeim bros þessum starfsmönnum flugvallarins... ekki frekar en stelpunum í hliðinu þegar loksins kom að því að ganga um borð...
Flugið gekk svo ágætlega, tekur bara um 50 mínútur að skreppa þarna yfir. En svo kom ég útúr flugstöðinn í Luton og beið eftir rútunni til Cambridge. Hún kom skömmu síðar og þá tók ekki betra við. Bílstjórinn var arabi, með túrban og eina stóra augabrún og hrikalegt attitjút !! Hann urraði á mig þegar ég nálgaðist rútuna of mikið (ég vildi vita hvort ég mætti setja töskuna í lestina).. hann skoðaði svo miðann og tók svo töskurnar og HENTI þeim í lestina og SPARKAÐI þeim yfir í hina hliðina á lestinni !! Ég var hálf hrædd við gaurinn og hafði dálitlar áhyggjur af því að verða skilin eftir á víðavangi einhversstaðar... en ég komst í miðbæ Cambridge og tók svo taxa þaðan og heim til Eddu og David... vá hvað það var gott að koma hingað inn og fá gott knús og svo góðan mat :) :)
Núna er úrhellisrigning og ég hangi bara inni og hef það gott :)

Skrifað af Sif
17.04.2012 08:06
Amsterdam - París
Góðan dag :)
Í Hollandi kíkti ég við í Amsterdam. Hún er ofsa falleg borg og mikið að sjá þar. Svo mikið af fólki og mannlífi að skoða að ég hafði ekki tíma í allt hitt sem ég var búin að punkta niður..t.d. vaxmyndasafnið og svoleiðis stöff... en, ég fer bara á það í London í staðin :)
Þegar þetta er skrifað er ég búin að vera í París í nærri viku, í góðu yfirlæti hjá Hrafnhildi og Nabil. Þau eiga yndislegt hús í úthverfi Parísar og það er frábært að vera hérna hjá þeim og börnunum þeirra :) Hrafnhildur kenndi mér á lestarkerfið og strætóana og gaf mér marga góða punkta um borgina. Svo hef ég verið á fullu að skoða og upplifa. Tók túr með túristastrætó (Hop on, hop off) til að sjá helstu minnismerkin, Sigurbogann, Eiffelturninn, Dómkirkjuna og Louvre safnið... ég hoppaði út hér og þar og rölti í kring, og hoppaði svo um borð í næsta og hélt áfram. Prýðileg leið til að sjá svona það helsta. Svo hef ég gengið og gengið... og gengið... orðin býsna þreytt í fótunum þessa dagana :) en það er alveg þess virði því ég hef séð alveg ótrúlega margt fallegt og skemmtilegt :) Í gær fór ég í Louvre safnið að heimsækja Mónu Lísu og Venus de Miló... þær voru voða fínar :) og allt hitt sem ég skoðaði líka, ég entist þó ekki nema í 2 tíma á þessu rölti.. er meira fyrir að skoða fólk en hluti :)
Dagurinn í dag verður rólegur... ég svaf frameftir og ætla núna uppúr hádeginu að fara inn í borgina og skipta einum bol sem ég keypti í gær og ganga svo aðeins meira :) :) endalaust hægt að virða fyrir sér mannlífið og húsin í þessari borg :)
Á morgun flýg ég svo til London, fer þaðan til Cambridge og verð hjá Eddu Báru í einhverja daga :)
Er að setja inn myndir hérna í albúmin...

10.04.2012 08:30
Margt að sjá..
Já, hérna er margt að sjá. Fyrstu dagana labbaði ég um bæinn hérna í Assen því Jonneke og Stephan voru að vinna. Í páskafríinu hefur Jonneke verið alveg á útopnu að sýna mér hitt og þetta... við fórum til Emmen og skoðuðum dýragarðinn þar, hann er frægur fyrir stærð og gæði. Við skoðuðum líka nokkrar búðir í leiðinni :) þvílíkur munur að versla hérna ! Hérna er nefnilega venjulegt fólk... ekki bara petit konur eins og á ítalíu... ekkert þunglyndi í þessum búðum :)
Á laugardaginn fórum við til Haarlem, þar sem bróðir Jonneke býr. Þar var mikil veisla því eldri dóttirin varð 17 ára þann dag. Við Jonneke fengum svo lánuð reiðhjól hjá þeim og tókum rúnt um þennan fallega bæ. Eitt af því sem var merkilegt þar var stór og falleg kirkja... þær voru löngum tvær í Haarlem, en svo var ákveðið að sameina söfnuðina og nota bara aðra kirkjuna. Til þess að þurfa ekki að fella kirkjuna var ákveðið að breyta henni í íbúðarhúsnæði!!! Hérna í Assen er svo önnur kirkja, heldur minni, sem búið er að breyta í læknastofur... :)
Á Sunnudag fórum við á hestbak. Jonneke á íslenskan hest og ég fékk lánaðan annan slíkan sem stendur í sama hesthúsi. Þvílíka dekrið á þessum hrossum :) Það eru 4 hross á bænum.. þessir 2 íslensku hestar og svo tvö Shetlands-pony tryppi :) Þeir hafa stórar stíur og flott land... hólf til að vera í og er beitt eftir kúnstarinnar reglum svo þeir hafi nóg en éti ekki yfir sig... Reiðtúrinn var rólegur og fínn, það var búið að spá skítaveðri, en það beið sem betur fer með að skella á þar til við vorum komnar heim aftur :) Höfum verið einstaklega heppnar með veðrið í ferðunum okkar.
í gær var svo farið til Veenhuizen sem er svæði þar sem nokkur stór fangelsi eru. Sum í notkun og sum ekki. Þetta svæði var á sínum tíma byggt upp af stjórnvöldum. Byggðar heljarinnar byggingar fyrir afbrotamenn, en líka fyrir fátæklinga... svo var skipulögð byggð í kringum þetta líka þar sem starfsfólkið bjó með sínum fjölskyldum. Skólar og sjúkrahús... mörg húsanna höfðu nöfn. "Mannúð", "vinna og biðja", "Menntun"... Við skoðuðum safnið og fórum útsýnisrúnt með gömlu fangaflutninarútunni... kíktum í glerlistasafn og fleira fínt... það er að verða til lítið listaþorp í nokkrum af húsunum í grennd við safnið. Eins er búið að gera upp fleiri hús og opna hótel og veitingastað. Allt eldað og bakað á staðnum úr lífrænt ræktuðu hráefni :) ofsa fínt.
Ég setti inn slatta af myndum.... Þeir sem vilja svo fleiri myndir og nánari útskýringar verða að kíkja í kaffi til mín þegar ég kem heim :)
Sem verður bráðum....

04.04.2012 14:07
Ferðin hafin...
Jæja, þá er loksins hægt að segja að ég sé á heimleið! Jibbíjei !
Núna er ég stödd í Hollandi eftir stutt stopp í Mílanó. Komin í hús hjá Jonneke og Stephan og hef það ljómandi alveg hreint.
Það eru liðin rúm 20 ár síðan við Jonneke kynntumst, vorum að ræða það í gær hvað það hefði verið skondið og flókið frá að segja hvernig það æxlaðist. Mín hlið sögunnar er mjög einföld miðað við hennar... það var s.s. dönsk kona sem hafði búið í Hollandi og kenndi mér spænsku á Íslandi sem spurði yfir bekkinn í einum spönskutímanum hvort við vissum um einhvern bóndabæ þar sem hollensk stelpa gæti fengið að dvelja hluta úr sumri og vinna við hesta og annað sem til félli ? Ég rétti umsvifalaust upp hönd og sagði "alltaf pláss í minni sveit!!" Lofaði þar upp í ermar foreldra minna, sem tóku því þó vel eins og alltaf... höfðu samt smá áhyggjur af því að geta ekki talað við hana... en það fór allt vel og við erum enn góðir vinir og hún heimsækir alltaf sveitina þegar hún kemur til landsins.
Ég ætla að vera hérna framyfir páska. Heilmikið plan, útreiða, hjólreiðar, bálreiðar.. nei djók.. afmælisveisla, sigling, heimsókn í dýragarð og fleira :)
Það var búið að vera frábært veður hérna undanfarnar vikur... en núna er bara kalt og rigning... ég þurfti að arka hraustlega úr bænum áðan til að verða ekki bara skítkalt !
En, það er nóg til af fötum :) og Holland ofsa fallegt þó það sé flatt :) Ætla að reyna að komast eins víða og ég get hérna :)
Meira síðar...

19.03.2012 12:11
Le Cinque Terre
Á laugardaginn síðasta fór ég með Maju og fjölskyldu til Cinque Terre, sem eru 5 smábæir við vesturströndina. Á milli bæjanna eru göngustígar (meðal annars) og eru leiðirnar miserfiðar. Milli fyrstu tveggja (talið sunnanfrá) er bara 20 mínútna gangur eftir Via Dell'Amore (vegur ástarinnar), við röltum þá leið í blíðunni en tókum eftir það lestir milli bæjanna. Á þessum stíg eru skrilljón lásar, líkt og á Ponte Vecchio, þar sem pör hafa verið að staðfesta ást sína.... það er m.a.s. hægt að kaupa sérmerkta lása við "innganginn" á stíginn !!
Ég var að setja inn myndir í albúm...
Í haust (á þeim góða degi 25.okt) urðu þarna ægileg aurflóð eftir miklar rigningar. Ótrúlegt að sjá hve vel hefur gengið að hreinsa til... aurinn fór í flestalla kjallara og inn í hús... en nú er búið að moka út og hreinsa og verið að mála og endurnýja gólf...
Ánum og lækjunum sem koma úr fjöllunum er veitt undir bæina í stokkum (sjá ristarnar í götunum á myndum) en í þessum hamförum þá fylltust þeir og allt flaut út um allt og inn í húsin.
Það eru þó nógu sterk húsin þarna til þess að þau flutu ekki burt með flóðinu heldur fylltust bara.
Einungis í einum bæ sáum við hvar flóðið hafði grafið undan tröppum framan við hús þar sem gatan lá niðurávið í beygju og straumurinn skall á með fullum þunga. Í fjallinu þar fyrir ofan var eini staðurinn þar sem ég sá sár í fjallinu þar sem losnað hafði úr því.
En, dagurinn var í heildina góður og ólýsanlega fallegt þarna, ótrúlegt hvernig bæirnir hanga utaní fjöllunum og hvernig fólk hefur í aldanna rás, ræktað vínvið og korn á handgerðum syllum í hlíðunum, fært sig og dót upp og þrúgurnar niður á heimagerðum "kláfum", borið allt á herðum sér og puðað við þetta.... ótrúleg elja.
Ég þarf eiginlega að koma þarna aftur á öðrum árstíma :) geri það næst þegar ég kem til landsins.. eða þarnæst....
En næst á dagskrá er hádegishittingur hjá íslensku skvísunum.... og svo fer ég líklega til Rómar..
er að veltast um í valkvíðanum með allt of marga möguleika :) :)
meira um það síðar...

16.03.2012 10:24
Smá...
Jæja, þá hef ég prófað að búa til pasta! :)
Það var fróðlegt og skemmtilegt og ég á örugglega eftir að spreyta mig á þessu aftur síðar. Ég tímdi náttúrulega ekki að taka upp myndavélina þegar ég var öll útí hveiti... og þegar við vorum búnar var hún svo fljót að pakka þessu inn að ég tók bara engar myndir :( verð bara að bæta úr því næst þegar ég bý til pasta :) Hérna er linkur á TripAdvisor þar sem fjallað er um þetta pastahús... myndirnar sem eru þarna eru næstum eins og ég hefði tekið þær... það gera greinilega allir eins :)
Í gær (fimmtudag) fórum við Maja svo í roadtrip... við keyrðum langa langa leið.. líklega um 3 tíma aðra leiðina.. til að sækja vín ! Fórum með stóra glerkúta og keyptum vín í þá. Vínið sem um ræðir er ótrúlega gott. Hvítvín, létt og ljúft með smá gosi... hrikalega sumarlegt og gott.
Ég hef tekið eina og eina mynd svona eftir því sem tíminn líður og ég setti þær í albúm áðan.. svona allskonar myndir saman..
Núna er það smá þvottur og smá leti.. kemur í ljós á eftir hvort Maja o/co ætla að skreppa í helgarferð... og ég með :) Það sem ég á þeim að þakka maður!!! Það er sko ekkert smá!
:)
en allavega... óver and át í bili !

12.03.2012 11:53
Helgarflakkið
Um helgina var ég hjá Ruth og Graziano. Þau rúntuðu með mig út um allt og við skoðuðum ofsalega margt fallegt :)
Á laugardeginum skoðuðum við útsýnið úr gömlum turni í Miniato og bæinn Vinci þar sem Leonardo nokkur var og hét :)
Á sunnudaginn var svo ferðinni heitið til Pisa að skoða skakka turninn... ég hélt alltaf að hann væri ofsalega stór... en hann er hálfgert kríli... hehe...
Eftir góða dvöl í rólegheitunum í Pisa fórum við til Viareggio. Þegar ég fór þangað að skoða carnevalið þá sá ég voða lítið af bænum fyrir fólki og búnaði. Núna röltum við um í sólskininu og fengum okkur pizzu og ís :) Það var rosalega mikið af fólki, en þau sögðu mér að þetta væri bara lítið. Á sumrin er alveg pakkað þarna og allir trítlandi um á sundfötunum því aðalgatan er við ströndina... held ég eigi ekki eftir að koma hérna að sumri til...
Myndir frá ferðalaginu í albúmum...
Næst á dagskrá: Pastanámskeið !

07.03.2012 19:27
Bókað !
Þá er það bókað... ég yfirgef Ítalíu þann 3.apríl eftir 7 mánaða og 4 daga veru... og við tekur obbolítið flakk um nokkur lönd...
Mikið hlakka ég til !
Mikið hlakka ég til !
Skrifað af Sif
04.03.2012 13:06
tæknilegir örðugleikar..
ohh.. ég var búin að skrifa svo langt og flott blogg... en það er týnt..
var að prófa nýja 123-admin kerfið...
nota bara þetta gamla áfram.
Ég var í þessu bloggi að ræða um áhættuþætti þess að hengja út þvott á 5.hæð (þegar snúrurnar eru utaná svölunum) og sýndi myndir því til skýringar:
1. Hérna er þvotturinn... kominn á snúruna. Útsýnið í þessa átt er "stutt".. bara næstu hús og garðurinn á milli þeirra og okkar.

2. þarna sér maður niður í garðinn... kisa að þvælast þarna á þakinu...

3. Þarna sést beint ofan í garðinn... hafði nottulega ekki með á myndinni tréð sem farið er að blómstra í næsta garði....

Á eftir þvottapælingunum kom svo önnur pæling um stóra hluti. T.d. þessa blessuðu dómkirkju í Flórens. Ef vel er að gáð (stór útgáfa af myndinni í albúmi) þá má sjá fólk þarna á efstu svölum.... og "litla" gyllta kúlan þarna efst er svo stór að inni í henni kæmust fyrir 3 Mercedes Benz bifreiðar staflað hverri ofan á aðra!!

Þess má svo enn frekar geta að kúlan hefur 3 sinnum dottið af kirkjunni í styrjöldum og jarðskjálftum... svo ótrúlega vildi til að hún féll á sama staðinn í öll skiptin!! Þar er núna merki á stéttinni og skilti hjá sem útskýrir þetta og varar fólk við því að standa þarna ef jörð skelfur eða eitthvað :)
Viðbót við bloggupprifjunina:
Ég skrapp í gær með Maju til Feneyja. Við fórum á mótorhjólinu þeirra svo Declan hefði bílinn heima og gæti skottast eitthvað með stelpurnar.
Þetta er nokkurra tíma keyrsla og vorum við obbolítið stífar þegar við mættum á svæðið.. það gleymdist þó fljótt og örkuðum við útum allt að skoða... fórum í siglingu með strætóbát kringum eyjarnar og örkuðum svo meira... (borðuðum, skoðuðum og allt nottulega)
Við keyrðum svo heim þegar kvöldaði og jeminneini hvað það var kalt á heimleiðinni!!!!
Ég var í tvennum buxum og peysu og úlpu... með hjálm sem passaði ekki á mig... og mér var svooooo kalt og svoooo illt þegar við komum heim... Ennþá stíf og eftir mig í dag, en það er alveg þess virði.. dagurinn var í heildina mjög skemmtilegur og gaman að koma til Feneyja. (nokkrar nýjar myndir fara í albúm á eftir)
Framundan er pastanámskeið, dagur á hestbaki, ferð til Pisa og Vinci (þaðan sem Leonardo var) og fleiri staða... svo er ég byrjuð að lesa mér til um Róm og nágrenni. Þangað mun ég fara á næstu vikum :)

21.02.2012 22:03
Ákvarðanir, ákvarðanir...
Ég er í því þessa dagana að reyna að taka ákvarðanir.
Ég hef aldrei verið sérstaklega góð í því.
Ég er samt að reyna...
Reyndar er dálítið gaman að velta þessu fyrir sér sem ég er að plana núna. Ég er nefnilega að reyna að setja saman dálítið plan yfir það sem ég vil gera áður en ég yfirgef Ítalíu og líka það sem ég vil gera áður en ég yfirgef meginland Evrópu....
Ég er komin með nokkur atriði á blað... búin að stroka út og skrifa aftur.. og aftur... og aftur...
Ég var alltaf með það á heilanum að ég yrði að fara heim í maí því mig langar að upplifa vorið hérna (og vorið í Hollandi og Frakklandi og Englandi...)
EN.. það er svosem alveg komið aðeins vor í apríl... alveg nóg....
Ég hef nefnilega ekki nóg að gera í mars og apríl til að komast hjá því að verða dálítið klikkuð af aðgerðarleysi á meðan beðið er eftir vorinu.
EN, ef ég flýti þessu um mánuð... þá er ekki nema mánuður þar til ég legg af stað heim... eða sirka það... verð svo nærri mánuð á leiðinni...
Á þessum mánuði sem eftir er hérna ætla ég þá að heimsækja vini mína hérna enn einusinni
(maður heimsækir nefnilega vini sína ekki of oft) kíkja í skreppitúr til Rómar....
Stoppa kannski aðeins við í hinni fallegu Veróna... og jafnvel, ef ég stytti ferðina þá hef ég kannski efni á að taka aðeins meiri málaskóla... jafnvel þá í Veróna... eða einhversstaðar...
Kíkja svo aðeins á sitthvað merkilegt á norður Ítalíu og enda í Mílanó og fljúga þaðan til Amsterdam... ég er alveg búin að sjá það að eftir dýran lestarrúnt um Ítalíu verður ljúft að fljúga fyrir smápeninga milli stórborganna...
Þannig kostar lest milli Flórens og Veróna (1,5 klst) 35 Evrur.... Flug frá Milanó til Amsterdam með EasyJet kostar ca það sama!!! Lestir í Evrópu eru orðnar rosalega dýrar... fargjöldin hafa hækkað jafn mikið þar eins og þau hafa lækkað í fluginu !
Vá... það eru svo mörg ÉG í þessum pistli !! Nú held ég að sálfræðingurinn minn yrði ánægður !!
hehe
Meira síðar.... ætla að demba mér í smá valkvíðakast fyrir svefninn :)

18.02.2012 18:23
Júlía, Rómeó og hitt fólkið í Verona
Jæja :) þá er búið að hespa af skottúr til Veróna...
Nei, þetta hljómar illa... betra að segja bara eins og er...
Í gærmorgun lögðum við af stað frá Campo di Marte ég, Helga Birna og dóttlan hennar hún Maggý Elísa (sem er bara 9 vikna gömul og því aðalmanneskjan í ferðinni).
Helga var að fara heim til Íslands í hleðslu :) hefur ekki farið heim í 2 ár og batteríin voru tóm. Erindi mitt í ferðinni var tvíþætt.. aðeins að kíkja á Verona og líka að vera til aðstoðar með töskur og dót í ferðalaginu. Þetta gekk vel hjá okkur, þegar við komum uppeftir byrjuðum við á því að fara með dótið á hótelið. Svo fórum við inn í bæ að skoða okkur um. Þá var carneval í gangi svo við fengum óvænta skemmtun. Þetta carneval var ólíkt þeim í Viareggio og Feneyjum. Litlir vagnar og færra fólk í búningum.... en líka stór flokkur uppábúins fólks á hestum... rosa flott :) Við röltum þarna um fram á seinnipartinn og fórum svo bara inn á hótel.... Maggý hélt sína reglulegu kvöldtónleika (er með svona týpiska kveisu núna grey skinnið) og hélt það út í rúma tvo tíma... eftir það vorum við allar uppgefnar og fórum að sofa um miðnættið. Í dag fylgdi ég svo þeim mæðgum út á völl um 11 leytið, við tékkuðum inn og settumst svo með kaffi í síðasta spjallið í bili... svo fylgdi ég þeim að öryggishliðinu og kvaddi.
Eftir það rölti ég yfir í komusalinn.... það var eins og að vera allt í einu komin í Leifsstöð!! Troðfullar vélar bæði frá Icelandair og Iceland Express að koma á sama tíma með fólk í skíðaferðir... Ég hitti þarna Önnu Hrönn og fleira gott fólk sem ég kannast við ....
Svo tók ég strætó í bæinn og labbaði þar um þar til mér fannst að lappirnar á mér væru símastaurar, eingöngu búnar til úr hökkuðu kjöti... s.s. orðið frekar illt.. :)
Svo ég rölti á brautarstöðina og settist þar með kaffi og ítalskt slúðurblað og beið eftir lestinni heim. Núna er ég komin í rólegheitin á via Tavanti og ætla snemma í bælið í kvöld :)
Myndir komnar í albúm hér á blogginu...
Glöð eftir góða daga.... nema hvað ég fann ekki Rómeó... finn hann kannski næst :)

16.02.2012 08:19
Bíó
Það gerist ekkert ofsalega oft að ég fari í bíó.
Ég ákvað þó fyrir nokkru að 13.feb skyldi ég drífa mig því þá vissi ég að yrði sýnd myndin "Karlar sem hata konur", ameríska útgáfan...
Áður en af því yrði var ég þó "dregin" með í bíó. Á líbanska mynd um fólk í litlu þorpi þar sem kristnir og múslimar búa... konurnar í þorpinu eru þreyttar á endalausum deilum karlmannanna um trúmál og siði og taka til sinna ráða... þrælskemmtileg.
En aftur að stelpunni með drekatattooið... mér fannst reyndar byrjunin geðveikt flott... dálítið Bond-leg en töff :) Flott lag líka (hljómar í trailernum líka)...
Ég er mikill aðdáandi sænsku myndanna og var því ögn vantrúuð á myndina þegar ég var sest í sætið mitt í bíósalnum og farin að maula poppið...
Það tók mig alveg hálfa myndina að sætta mig við leikarana og túlkun þeirra... en eftirá er ég mjög sátt. Þessi útgáfa er engin hermikráka. Ofsa mikið amerískari (auðvitað) en mjög trú sögunni og því sem þar stendur, á annan hátt þó heldur en þær sænsku.
Sem sagt.... ég á örugglega eftir að eiga bæði sænsku og ensku seríurnar í skápnum mínum í framtíðinni :)
Nú er það bara skólinn... og svo að undirbúa ferðina til Verona á morgun :)

12.02.2012 11:11
Feneyjar
Borgin Feneyjar er byggð á 117 eyjum... þið getið þá ímyndað ykkur magn síkja og brúa í borginni... :)
Þó flest húsin beri það með sér að vera gömul og múrinn sé að flysjast af þeim þá hafa þau flest yfir sér þennan sjarma sem einkennir staðinn. Maður er alltaf að fara upp og niður stiga, yfir brýrnar óteljandi sem eru í borginni. Ég var voða fegin að vera bara með bakpokann þegar við Nayana komum til Feneyja. Ég bisaði við að hjálpa henni með stóru ferðatöskuna hennar... og litlu ferðatöskuna... (hún fór svo þaðan til Rómar og flaug þaðan heim til Brasilíu)
Hún bjó á hosteli sem er fjær aðalgötunni en hostelið sem ég var á og fékk því aukalega 2 brýr í viðbót að bisa með töskurnar.. ég hefði hugsað til hennar í morgun að paufast með þetta ein til baka á stöðina ef ég hefði ekki verið sofandi :) :) hehe :)
Það var reyndar á tímabili alveg spurning hvort við yrðum, önnur eða báðar, veðurtepptar í Feneyjum. Það var spáð mikilli snjókomu um helgina og þá stöðvast allar lestir... Ekkert bólaði þó á snjókomu fyrr en í morgun þegar hún var að fara af stað. Þannig að við sluppum báðar fyrir horn :)
Feneyjar eru alveg jafn sjarmerandi og ég bjóst við. Skurðirnir, bátarnir, fólkið... ég væri alveg til í að vera laus við túristana.. og þá sérstaklega ameríkanana!! Meirihluti krakkanna á hostelinu voru kanar... feitir, hávaðasamir og algerlega tillitslausir! Þau drukku sig blindfull og voru með læti fram á nótt... fóru þá út og komu svo með látum aftur klukkan að ganga fimm... þá hafði ég legið og hlustað á hrotur í smástund... en ég skal segja ykkur það að þær hrotur voru vögguvísa miðað við amerísku þrumurnar !!! jemundur minn.... þannig að ég hef s.s. ekki ennþá sofið í Feneyjum.
Laugardagurinn var líka góður. Við vorum mættar á Markúsartorgið um 10 leytið og náðum í miðana okkar að VIP svæðinu fyrir framan sviðið (flottar á því sko) Við gátum s.s. setið/staðið/rölt fast upp við sviðið eða hvar sem við vildum.. fínt útsýni.. ég tók slatta af myndum (sjá í albúmi - fleiri myndir hér en á feisbúkk) En mikið óskaplega er gott að eiga góðan "undirbúning", föðurlandið sannaði sig einu sinni enn þessa helgina. Hefði ekki lifað af án þess :) allavega ekki séð svona mikið ´því ég hefði alltaf verið inni að hlýja mér :)
Hahaha
en, jæja.. læt þessu lokið í bili... næsti tryllingur verður til Verona að viku liðinni... fylgja Helgu minni í flug.. með barnið og töskurnar og kerru og dót... :)

05.02.2012 19:34
Carneval í Viareggio
í dag var ég í Viareggio sem er lítil borg á vesturströnd Ítalíu (tæpir 2 tímar með lest héðan)
Það var ofsa kalt en alveg ofsalega flott að vera þarna og fylgjast með carnevalinu... skoða vagnana og búningana... og búninga fólksins sem kom að fylgjast með... ungir sem aldnir í búningum af ýmsum toga...
Myndir frá herlegheitunum í albúmi hér á síðunni (fleiri en á feisbúkk...)

03.02.2012 16:37
Brjálað að gera...
Hæ og hó
ég er á fullu að leika mér :)
Ætla að skoða Uffici safnið á morgun með hópi frá skólanum (þó ég hafi formlega lokið skólagöngu minni þar í dag). Annaðkvöld er það svo tónleikapöbbinn hérna uppfrá, þar verður ítalskt band með U2 tribute tónleika....
Á sunnudagsmorgun verður svo brunað (með lest) til Viareggio sem er fræg fyrir carneval-ið sitt... ekki eins fræg og Feneyjar... en fræg samt :)
Eftir viku fer ég svo í mjög stutta en vonandi ánægjulega heimsókn til Feneyja að upplifa ALVÖRU carneval !!!
Ég er búin að hlaða batteríið í myndavélinni... (geri það örugglega aftur til öryggis) og ætla að taka myndir.... :) :)
já, myndir... búin að setja inn myndir (sömu og á feisbúkk reyndar ef þið hafið séð þær þar)
meira síðar...